Ölgerðin hf. ánægð með þjónustu VBM

15. janúar 2025
„Ferli við skráningu og greiðslu víxla hjá VBM gengur hratt og vel fyrir sig og fyrir hönd Ölgerðarinnar get ég fyllilega mælt með þjónustu VBM“.
Jón Þorsteinn Oddleifsson, framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar.
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 23. janúar 2024
„Algalíf Iceland hf. hefur skráð hlutabréf félagsins hjá Verðbréfamiðstöð Íslands hf. ( VBM) og fær með því lögformlega staðfestingu á eignarhaldi og réttindum fyrir fjárfesta auk þess sem skráning í verðbréfamiðstöð einfaldar vinnu stjórnenda og fjárfestar sjá eignir sínar og hreyfingar í netbanka.  Við erum mjög ánægð að hafa valið að skrá hlutabréf félagsins hjá VBM og vorum leidd í gegnum skráningarferlið af öryggi og fagmennsku.“ Orri Björnsson framkvæmdastjóri Algalíf Iceland hf.
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 27. nóvember 2023
Það er með mikilli ánægju sem við tilkynnum að VBM er nú orðinn fullgildur aðili að ECSDA (European Central Securities Depositories Association) , samtökum evrópskra verðbréfamiðstöðva.
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 1. júní 2023
Í dag, 01 júní 2023 tekur gildi ný reglugerð nr. 441/2023 um eignarskráningu í verðbréfamiðstöð. Með gildistökunni fellur niður heimild verðbréfamiðstöðvar þar sem hlutabréf félaga eru rafrænt skráð til að krefjast samþykki hluthafafundar (eða skriflegs samþykkis hluthafa) fyrir afskráningu í þeirri verðbréfamiðstöð og flutnings rafrænnar skráningar félagsins til annarrar verðbréfamiðstöðvar. Þessar breytingar einfalda mikið ferlið við flutning verðbréfa á milli verðbréfamiðstöðva. Samkvæmt 27. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög er heimilt samkvæmt ákvörðun stjórnar félagsins að gefa út hlutabréf með rafrænum hætti í verðbréfamiðstöð í samræmi við lög um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga. Samkvæmt hlutafélagalögum eru ákvarðanir um rafræna skráningu félags og því eðli málsins samkvæmt einnig afskráningu, í höndum stjórnar félags. Reglugerð nr. 441/2023 um eignarskráningu í verðbréfamiðstöð má nálgast hér https://island.is/reglugerdir/nr/0441-2023 og lög nr. nr. 2/1995 um hlutafélög má nálgast hér https://www.althingi.is/lagas/nuna/1995002.html
Sýna fleiri
Share by: